CB skófla

Nákvæm skófla fyrir mjóa og djúpa skurði

Kapalskóflan er hönnuð fyrir nákvæman gröft í mjóum og djúpum skurðum þar sem stjórn og aðgengi skipta máli. Mjó og löng lögun hennar auðveldar vinnu í kringum lagnir, kapla og aðra innviði. Hún hentar einstaklega vel í lagnavinnu, framræslu, dren og önnur verk þar sem þarf hreina og nákvæma skurðlínu.